Sérkortin eru níu að tölu og sýna meðal annars þjóðgarða og vinsæla ferðamannastaði. Kortin sýna vegi, örnefni og helstu gönguleiðir. Skýringar eru á ensku og íslensku.

Showing all 8 results

Sérkort – The Golden Circle

kr. 1.795

Vandað og handhægt kort sem nær yfir Gullna hringinn (Gullfoss – Geysir – Þingvellir), vinsælustu ferðamannaleið á Íslandi. Á kortinu eru einnig ljósmyndir og upplýsingar um helstu ferðamannastaði á leiðinni, s.s. Bláa lónið. Kortið er unnið eftir nýjustu stafrænum gögnum og þar er að finna helstu upplýsingar um vegi, vegalengdir og ferðaþjónustu.

  • Mælikvarði: 1:200 000

  • Útgefið: 2017

  • Stærð: 35 x 94 cm / Þyngd: 50 g.

  • Tungumál: Íslenska, enska, þýska og franska

 

Sérkort – Akureyri / Mývatn / Húsavík / Ásbyrgi

kr. 1.795

Vandað og handhægt kort yfir vinsælt landsvæði á Íslandi. Á kortinu eru einnig ljósmyndir og upplýsingar um helstu ferðamannastaði á svæðinu. Kortið er unnið eftir nýjustu stafrænum gögnum og þar má finna helstu upplýsingar um vegi, vegalengdir og ferðaþjónustu.

  • Mælikvarði: 1:200 000

  • Útgefið: 2011

  • Stærð: 42 x 94,5 cm / Þyngd: 60 g.

  • Tungumál: Íslenska, enska, þýska og franska

 

Sérkort – Snæfellsnes / Borgarfjörður

kr. 1.795

Vandað og handhægt kort yfir vinsælt landsvæði á Íslandi. Á kortinu eru einnig ljósmyndir og upplýsingar um helstu ferðamannastaði á svæðinu. Kortið er unnið eftir nýjustu stafrænum gögnum og þar má finna helstu upplýsingar um vegi, vegalengdir og ferðaþjónustu.

  • Mælikvarði: 1:200 000

  • Útgefið: 2015

  • Stærð: 41 x 100 cm / Þyngd: 64 g.

  • Tungumál: íslenska, enska, þýska, franska

 

Sérkort – Þórsmörk / Landmannalaugar

kr. 1.795

Þetta mikla sölukort hefur komið út reglulega í rúma tvo áratugi. Það sýnir meðal annars gönguleiðina milli Landmannalauga og Þórsmerkur, en nær einnig suður fyrir jökla og sýnir gönguleiðina yfir Fimmvörðuháls.

  • Mælikvarði: 1:100 000

  • Útgefið: 2017

  • Stærð: 84,5 x 62 cm / Þyngd: 75 g.

  • Tungumál: Íslenska, enska, þýska og franska

 

 

Out of stock

Sérkort – Skaftafell / Öræfajökull

kr. 1.795

Vandað og handhægt kort af vinsælu landsvæði á Íslandi. Það sýnir meðal annars Svartafoss, Ingólfshöfða og Hvannadalshnjúk, hæsta tind landsins. Kortið er með hæðarskyggingu og unnið eftir stafrænum kortagögnum. Á því er að finna mikinn fjölda örnefna og upplýsingar um vegi, veganúmer o.fl.

  • Mælikvarði: 1:100 000

  • Útgefið: 2016

  • Stærð: 66 x 78 cm / Þyngd: 72 g.

  • Tungumál: Islenska, enska, þýska og franska

 

Out of stock

Sérkort – Hornstrandir

kr. 1.795

Hornstrandakortið er þekkt útivistarkort sem hefur verið notað um árabil af göngufólki sem leggur leið sína um þetta einstaka svæði.

  • Mælikvarði: 1:100 000

  • Útgefið: 2003

  • Stærð: 62 x 83,5 cm / Þyngd: 73 g.

  • Tungumál: Islenska, enska, þýska og franska

 

Sérkort – Húsavík / Mývatn

kr. 1.795

Þetta þekkta og vinsæla kort hefur komið út um árabil, en það sýnir meðal annars Húsavík, Þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum, Aðaldal og svæðið í kringum Mývatn.

  • Mælikvarði: 1:100 000

  • Útgefið: 2016

  • Stærð: 84,5 x 62 cm / Þyngd: 74 g.

  • Tungumál: Íslenska, enska, þýska og franska

 

Out of stock

Jöklakort af Íslandi

kr. 2.485

Ný útgáfa 2017

„Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar…“

Þegar Jónas Hallgrímsson horfði til Hofsjökuls sumarið 1841, í einni af mörgum ferðum sínum um landið, óraði hann ekki fyrir því að hálfri öld síðar myndi útbreiðsla jökla á Íslandi ná hámarki. Jöklakort af Íslandi, sem Veðurstofa Íslands hefur gefið út, dregur fram sögu breytinga íslensku jöklanna. Kortið sýnir mestu útbreiðslu jöklanna á sögulegum tíma, sem víðast varð við hámark litlu ísaldar um 1890, hvernig þeir voru 1945-1946, um aldamótin 2000 og 2014. Á kortinu eru framhlaupsjöklar greindir frá hinum með sérstökum lit og merktar þær eldfjallaöskjur sem vitað er um undir jökli.

Jöklakortið af Íslandi er yfirlitskort af öllum jöklum landsins. Á Tröllaskaga, sem umlykur æskustöðvar þjóðskáldsins, er til að mynda að finna hátt í 180 smájökla sem margir hafa hingað til verið nafnlausir á landakortum. Hver veit nema Jónas hafi litið Hrafnabjargajökul eða Gálgagilsjökul eigin augum á ferð um heimaslóðir?

Bæklingur og örnefnaskrá fylgja kortinu. Þar er meðal annars greint frá stærð helstu jökla og stærðarbreytingum fram á 21. öld. Allt lesmál er á tveimur tungumálum, íslensku og ensku. Höfundar jöklakortsins eru Oddur Sigurðsson jarðfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, Richard S. Williams Jr. jarðfræðingur hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri og Skúli Víkingsson jarðfræðingur hjá ÍSOR. Kortahönnuður er Guðrún Sigríður Jónsdóttir hjá ÍSOR.

Yfirlitskort af öllum jöklum með örnefnum þeirra jökla sem nafn hafa fengið. Kortið sýnir breytingar á jöklum frá hámarki litlu ísaldar um 1890 til upphafs 21. aldar. Einnig er sýnd staða jöklanna um miðja 20. öld. Helstu eldfjöll, sem undir jöklunum liggja, eru merkt. Framhlaupsjöklar eru sýndir með sérstökum lit.

  • Mælikvarði: 1:500 000

  • Útgefið: 2017

  • Útgefandi: Veðurstofa Íslands

  • Stærð: 84 x 119 cm / Þyngd: 122 g.

  • Tungumál: Íslenska, enska, þýska og franska