Ferðakortabækur IÐNÚ samanstanda af vönduðu heildarkorti af landinu með hæðarskyggingu, annars vegar í mælikvarðanum 1:500 000 og hinsvegar 1:200 000.

Showing all 2 results

Ísland – Ferðakortabók með þéttbýliskortum

kr. 3.598

Ferðakortabók með þéttbýliskortum í mælikvarðanum 1:500:000. Í henni eru upplýsingar um bensínstöðvar, gistingu, tjaldsvæði, sundlaugar, söfn og golfvelli svo fátt eitt sé nefnt. Einnig eru í bókinni nýjustu upplýsingar um vegakerfi landsins, vegalengdir og vegnúmer og ítarleg nafnaskrá með yfir 3.000 örnefnum. Ferðakortabókin er í afar handhægu broti og fer vel hvort sem er í hanskahólfi eða bakpoka.

  • Mælikvarði: 1:500 000

  • Útgefið: 2021

  • Stærð: 25 x 15 cm / Þyngd: 232 g / Blaðsíður: 106

  • Tungumál: Íslenska, enska, þýska og franska

 

Ísland Vegaatlas 1:200 000

kr. 5.498

Vegaatlasinn er byggður á kortagrunni í mælikvarðanum 1:250 000. Auk venjulegra korta á 50 blaðsíðum eru í atlasinum ýmis þemakort, s.s. um gististaði, tjaldsvæði, söfn, sundlaugar og golfvelli. Þá er í bókinni ítarleg nafnaskrá með yfir 15.500 örnefnum. Sérstaða bókarinnar felst meðal annars í skemmtilegu formi hennar, en samanbrotin er hún aðeins 16 x 31 cm og því handhæg í bílinn. Vegaatlasinn er í vandaðri öskju.

  • Mælikvarði: 1:200 000

  • Útgefið: 2021

  • Stærð: 31 x 16 cm / Þyngd: 448 g / Blaðsíður: 86

  • Tungumál: Íslenska, enska, þýska og franska